Fréttir
Um Credo
Stefnuyfirlýsing
Geisladiskar
Í vinnslu
Aðstandendur
English version

Um Credo

Kynning á félaginu

Félagið Credo var stofnað af þremur tónlistareldhugum við upphaf 21. aldar. Markmið félagsins er að koma list íslenskra tónlistarmanna á framfæri við umheiminn. Með gæði og frumleika að leiðarljósi og í náinni samvinnu við framúrskarandi listamenn hyggst félagið þróa og fylgja eftir framleiðslu útgáfuverkefna, sem komið verður á framfæri við virt erlend útgáfufyrirtæki.

Fullyrða má að íslensk tónlistarmenning hafi tekið stórstígari framförum á nýliðinni öld en dæmi eru til fyrr eða síðar hvar sem er í heiminum. Fáum áratugum eftir að algengustu hljóðfæri vestrænnar tónlistar sáust hér fyrst eigum við frambærilega hljóðfæraleikara á flestum sviðum og fjölmörg atkvæðamikil tónskáld, að ekki sé minnst á alla stórsöngvarana eða kórana. Á síðari árum hefur hugur manna hneigst til landvinninga úti í hinum stóra tónlistarheimi, m.a. á sviði hljómplötusölu. Það er hinsvegar hægara sagt en gert að vekja á sér athygli í hinni gríðarlegu samkeppni sem þar ríkir. Alþjóðakynning á hljómdiskum íslenskra tónlistarmanna hefur oftast verið nokkuð tilviljanakennd og óskipulögð og þótt fáeinir diskar hafi náð eyrum erlendra tónlistaráhugamanna, hefur árangurinn ekki verið til frambúðar. Íslenska markaðssvæðið er lítið og geisladiskar með metnaðarfullri efnisskrá, sem gefnir eru út hér á landi, seljast þegar best lætur í fáum hundruðum eintaka. Þegar síðan kemur að markaðssetningu diskanna á erlendri grundu er við ramman reip að draga. Hinn mikli fjöldi geisladiska sem gefinn er út á hverju ári á heimsvísu er eins og háreistur múr, sem erfitt reynist að komast yfir.

Það voru þeir Halldór Hauksson útvarpsmaður, Sveinn Kjartansson hljóðupptökumaður og Sverrir Guðjónsson tónlistarmaður sem stofnuðu félagið Credo í upphafi árs 2001. Kveikjan að félaginu var sú bjargfasta trú þremenninganna að fjöldi íslenskra tónlistarmanna og tónlistarhópa eigi fullt erindi við heimsbyggðina. Markmið félagsins er að ryðja leið þessara listamanna út í heim, svo að þeir geti haldið í tónlistarvíking með áhugaverðar hljóðritanir að vopni. Til þess þarf að vinna á markvissan hátt eftir réttum leiðum. Það er tímabært að reyna nýjar aðferðir við kynningu á íslenskri tónlistarmenningu og tónlistarfólki.

Meginviðfangsefni Credos verður að vinna að forvitnilegum útgáfuverkefnum með íslenskum tónlistarmönnum og bjóða þau erlendum fyrirtækjum til útgáfu. Félagið stefnir að því að ná persónulegu og varanlegu sambandi við nokkur þeirra útgáfufyrirtækja sem sýnt hafa mesta rækt við frumlegar hugmyndir á undanförnum árum og hafa náð að festa sig í sessi á heimsmarkaðnum fyrir vikið. Ljóst er að geisladiskar á útgáfulista þekktra fyrirtækja, með vel þróað kynningar- og markaðsnet, eiga góða möguleika á að berast fyrir augu og eyru þjóða heimsins.

Með því að gæta þess að allar hljóðritanir sem Credo leggur nafn sitt við séu unnar af natni og fagmennsku og sýni hæfileika tónlistarmannanna í skörpu og áhugaverðu ljósi er von félagsins að það muni ávinna sér og tónlistarfólkinu virðingu og áhuga útgáfufyrirtækjanna. Þess verður einnig gætt að hverju verkefni sé beint til þess fyrirtækis sem helst má ætla að sýni því áhuga.

Samskipti við útgáfufyrirtæki verða sem sé mikilvægur þáttur í starfi Credos. Til að árangur náist í þeirri vinnu þarf „hráefnið”, þ.e. hinar hljóðrituðu efnisskrár, vitanlega að uppfylla ýtrustu gæðakröfur. Þess vegna verða viðfangsefnin valin af mikilli kostgæfni og þróun þeirra og vinnslu vandlega fylgt eftir, allt þar til hægt er að bera frumeintak (master) á borð útgáfufyrirtækjanna.

Credo mun vinna náið með nokkrum af fremstu tónlistarmönnum landsins, listamönnum sem búa ekki aðeins yfir frábærum hæfileikum, heldur hafa sterka og persónulega sýn á viðfangsefni sitt. Við samsetningu efnisskránna verður áhersla lögð á að yfirbragð hvers disks verði heilsteypt og rækilega úthugsað. Ný og spennandi tónlist verður kynnt, en einnig verður nýstárlegu ljósi varpað á eldri verk. Það er ennfremur á stefnuskrá Credos að athuga hvað gerist þegar fulltrúum ólíkra tónlistarstíla er teflt saman og hvað kemur út úr samstarfi erlendra tónlistarmanna og Íslendinga. Ein af meginreglum Credos verður þó að hafa fá járn í eldinum á hverjum tíma, þannig að hægt sé að hlúa sem best að hverju verkefni fyrir sig.

Meðal þeirra listamanna sem nú þegar hafa hafið samstarf við Credo eru Hafliði Hallgrímsson tónskáld, Hörður Áskelsson stjórnandi, Guðni Franzson klarinettuleikari, sönghópurinn Voces Thules og Caputhópurinn.

Höfundarréttur © 2003-2006 Credo · 1876 flettingar