Fréttir
Um Credo
Stefnuyfirlýsing
Geisladiskar
Í vinnslu
Aðstandendur
English version

Stefnuyfirlýsing

  1. Nafn félagsins er Credo. Í nafninu felst trú aðstandenda þess á hlutverki og tilgangi félagsins.
  2. Markmið félagsins er að koma list íslenskra tónlistarmanna á framfæri við umheiminn.
  3. Í stað eigin útgáfu mun Credo vinna náið með tónlistarmönnum að þróun útgáfuverkefna, sem síðan verða kynnt og boðin erlendum útgáfufyrirtækjum til útgáfu.
  4. Credo mun sérstaklega stuðla að og styðja útgáfuverkefni sem bera vott um frumlega hugsun og nýstárleg efnistök.
  5. Það er einlægur ásetningur aðstandenda Credos að stuðla að samvinnu íslenskra og erlendra listamanna og einnig að samfundum fulltrúa hinna ýmsu stílbrigða og stefna í tónlistarheiminum.
  6. Aðstandendur Credos munu leggja mikla áherslu á vönduð vinnubrögð og natni í öllum þáttum starfseminnar.
  7. Aðstandendur Credos áskilja sér fullan rétt til að hætta afskiptum af útgáfuverkefni, ef þeir telja útkomuna ekki vera í samræmi við stefnu félagsins.
  8. Credo heldur ekki fjárhagslega utan um útgáfuverkefni, heldur veitir fagleg ráð og markaðsaðstoð.
  9. Aðstandendur Credos munu mæla árangur félagsins í gæðum en ekki magni. Því mun félagið vinna að fáum og vel völdum verkefnum á hverjum tíma.
  10. Credo er félag þriggja undirritaðra áhugamanna um tónlist og útgáfumál. Allar ákvarðanir um starfsemi félagsins eru teknar sameiginlega af þremenningunum.
Höfundarréttur © 2003-2006 Credo · 1707 flettingar