Fréttir
Um Credo
Stefnuyfirlýsing
Geisladiskar
Í vinnslu
Aðstandendur
English version

Aðstandendur

Halldór Hauksson

Halldór HaukssonHalldór Hauksson lauk burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskóla Garðabæjar árið 1987. Hann var búsettur í Stokkhólmi um sex ára skeið og stundaði þar margvísleg störf á menningarsviðinu. Árin 1996-2000 var hann dagskrárstjóri á útvarpsstöðinni Klassík FM og stjórnaði þar ýmsum þáttum, m.a. um kantötur Johanns Sebastians Bachs. Halldór hefur á undanförnum árum leitað nýrra leiða við að vekja athygli Íslendinga á klassískri tónlist, allt frá því að koma fram í útvarpsþættinum Tvíhöfða til námskeiðshalds á vegum Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar og Endurmenntunar Háskóla Íslands. Halldór hefur einnig skrifað um tónlist í dagblöð og ritað greinar í geisladiskabæklinga og efnisskrár, m.a. fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og Salinn í Kópavogi. Hann var fjölmiðlafulltrúi Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju 2001 og 2003.

Netfang: h.hauks@mi.is

Sveinn Kjartansson

Sveinn Kjartansson er einn af reyndustu hljóðupptökumönnum landsins og er einn aðaleigenda Stafræna hljóðupptökufélagsins ehf. Meðal þeirra geisladiska sem Sveinn hefur tekið upp eru Grafskrift með Sverri Guðjónssyni, Amor með Musica Antiqua, Gran Partita með Blásarakvintett Reykjavíkur og félögum, Principium og Heyr, himna smiður með Schola cantorum, Stokkseyri og Skálholtsmessa eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson í flutningi Caputhópsins, Sálmar lífsins og Sálmar jólanna með Sigurði Flosasyni og Gunnari Gunnarssyni, Himnastiginn og Djúpið með Sigurði Flosasyni, Eyþóri Gunnarssyni og Lennart Ginnman, Eintal með Sigurði Halldórssyni, Óbó, horn og orgel með Daða Kolbeinssyni, Joseph Ognibene og Herði Áskelssyni, Jól í Hallgrímskirkju með Mótettukór Hallgrímskirkju, Gjafir andans með Margréti Bóasdóttur og Birni Steinari Sólbergssyni og síðast en ekki síst stjórnaði Sveinn upptökum á helsta stolti Credos þessa dagana, Passíu Hafliða Hallgrímssonar. Sveinn Kjartansson starfaði sem hljóðmeistari Þjóðleikhússins um níu ára skeið og er nú tæknistjóri og kennari við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.

Netfang: sveinnkj@simnet.is

Sverrir Guðjónsson

Sverri GuðjónssonSverrir Guðjónsson tónlistarmaður hóf sinn söngferil barn að aldri. Auk þess að flytja fyrri tíma tónlist, m.a. með sönghópnum Voces Thules, hefur Sverrir frumflutt fjölda tónverka sem sérstaklega voru samin med hans raddsvið í huga. Geisladiskur hans Epitaph eða Grafskrift var gefinn út af hinu virta franska fyrirtæki Opus 111 og hlaut meðal annars hæstu einkunn hjá gagnrýnanda tímaritsins Gramophone.

Áfram

Eldri fréttir: RSS

Höfundarréttur © 2003-2006 Credo · 1943 flettingar