Fréttir
Um Credo
Stefnuyfirlýsing
Geisladiskar
Í vinnslu
Aðstandendur
English version

Dómur um Passíu í Bæverska útvarpinu

Hafliði Hallgrímsson
Passía, op. 28

Mary Nessinger (mezzósópran), Garðar Thór Cortes (tenór), Mótettukór Hallgrímskirkju, Kammersveit Hallgrímskirkju, stj. Hörður Áskelsson
Ondine ODE 1027-2

Íslendingurinn Hafliði Hallgrímsson, eitt fremsta tónskáld Norðurlandanna, er ef til vill þekktur meðal ýmissa tónelskra vetraríþróttaáhugamanna fyrir verk sem undirbúningsnefnd Ólympíuleikanna í Lillehammer 1994 pantaði hjá honum, en það var Ríma fyrir sópran og strengjasveit.

Hér er hinsvegar fyrsta verk Hafliða Hallgrímssonar fyrir einsöngvara, kór og hljómsveit til umfjöllunar. Þetta er einnig pöntunarverk og var samið í tilefni af þúsund ára kristnitökuafmæli á Íslandi árið 2000. Passía var frumflutt 18. febrúar 2001 í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Þetta er áhrifamikið, djúphugult verk sem fléttar saman fjölmargar stíltegundir og leikaðferðir nútímatónlistar svo úr verður heillandi dramatísk og voldug passía. Textinn er settur saman úr ljóðum íslenskra 20. aldar skálda og erindum úr hinum þekktu Passíusálmum 17. aldar prestsins og skáldsins Hallgríms Péturssonar. Í tuttugustu aldar kveðskapnum má merkja undirliggjandi einhvers konar algyðistilfinningu sem sameinast íhugun Passíusálmanna og skapar sérstaklega grípandi textaheild sem einkennist af mikilli auðmýkt.

Það sem vekur sérstaka eftirtekt í Passíu er óvenjuleg tilfinning Hafliða Hallgrímssonar fyrir línum, litum og fagurri áferð og úthugsuð, síbreytileg hljómsveitarútsetningin. Hljóðstyrksrófið er mikið, styrkleikastigið magnar tjáningu textabrotanna, allt frá ljóðrænum, andlega innhverfum og sönghæfum línum til örvæntingarfulls hróps alls mannkyns. Og það er vafalaust þetta sem gerir Passíu svo grípandi: heillandi tilfinningadýpt verksins, sem treystir aldrei á hið yfirborðskennda heldur ætíð á framúrskarandi formgerð og innblásna tjáningu.

Það er ekki annað hægt en að taka ofan fyrir flytjendunum, sem glæða þessa einkar áhugaverðu tónsmíð Hafliða Hallgrímssonar lífi með músíkalskri nákvæmni og tilfinningahita. Ekki er erfitt að ímynda sér að þetta verk – sem greinilega á rætur í norrænu sálarlandslagi – eigi eftir að rata inn á efnisskrár metnaðarfullra föstutónleika í framtíðinni. Nútímatónlist fyrir hug og fyrir hjarta – Hafliði Hallgrímsson sýnir okkur að slíkt er til.

Ursula Adamski-Störmer, Bayern 4 Klassik, 27. febrúar 2004

Höfundarréttur © 2003-2006 Credo · 1440 flettingar