Sveinn Kjartansson er einn af reyndustu hljóðupptökumönnum landsins og er einn aðaleigenda Stafræna hljóðupptökufélagsins ehf. Meðal þeirra geisladiska sem Sveinn hefur tekið upp eru Grafskrift með Sverri Guðjónssyni, Amor með Musica Antiqua, Gran Partita með Blásarakvintett Reykjavíkur og félögum, Principium og Heyr, himna smiður með Schola cantorum, Stokkseyri og Skálholtsmessa eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson í flutningi Caputhópsins, Sálmar lífsins og Sálmar jólanna með Sigurði Flosasyni og Gunnari Gunnarssyni, Himnastiginn og Djúpið með Sigurði Flosasyni, Eyþóri Gunnarssyni og Lennart Ginnman, Eintal með Sigurði Halldórssyni, Óbó, horn og orgel með Daða Kolbeinssyni, Joseph Ognibene og Herði Áskelssyni, Jól í Hallgrímskirkju með Mótettukór Hallgrímskirkju, Gjafir andans með Margréti Bóasdóttur og Birni Steinari Sólbergssyni og síðast en ekki síst stjórnaði Sveinn upptökum á helsta stolti Credos þessa dagana, Passíu Hafliða Hallgrímssonar. Sveinn Kjartansson starfaði sem hljóðmeistari Þjóðleikhússins um níu ára skeið og er nú tæknistjóri og kennari við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.
Netfang: sveinnkj@simnet.is