Fréttir
Um Credo
Stefnuyfirlýsing
Geisladiskar
Í vinnslu
Aðstandendur
English version

Sverrir Guðjónsson

Sverri GuðjónssonSverrir Guðjónsson tónlistarmaður hóf sinn söngferil barn að aldri. Auk þess að flytja fyrri tíma tónlist, m.a. með sönghópnum Voces Thules, hefur Sverrir frumflutt fjölda tónverka sem sérstaklega voru samin med hans raddsvið í huga. Geisladiskur hans Epitaph eða Grafskrift var gefinn út af hinu virta franska fyrirtæki Opus 111 og hlaut meðal annars hæstu einkunn hjá gagnrýnanda tímaritsins Gramophone.

Meðal annarra geisladiska sem Sverrir hefur sungið inn á eru: Tíminn og vatnið eftir Atla Heimi Sveinsson með Kammersveit Reykjavíkur, Stokkseyri eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson með Caputhópnum, Ævintýraóperan Sónata eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Amor - endurreisnartónlist med Musica Antiqua, óperusvítan Leggur og skel eftir Finn Torfa Stefánsson, óperan Fjórði söngur Guðrúnar eftir Hauk Tómasson og Óttusöngvar á vori eftir Jón Nordal með Mótettukór Hallgrímskirkju.

Sverrir Guðjónsson hefur á undanförnum árum tekið að sér ýmis tónlistartengd verkefni sem listrænn stjórnandi, bæði fyrir útvarp, sjónvarp, leikhús og geisladiskaupptökur. Hann vinnur nú að einyrkjadiskinum Odyssey of Fate eða Örlög.

Netfang: sverrire@centrum.is

Höfundarréttur © 2003-2006 Credo · 2443 flettingar