Fréttir
Um Credo
Stefnuyfirlýsing
Geisladiskar
Í vinnslu
Ađstandendur
English version

Passía

Forsíđu geisladisksins

Passía op. 28 eftir Hafliđa Hallgrímsson (f. 1941)

Flytjendur: Mary Nessinger mezzosópran, Garđar Thór Cortes tenór, Mótettukór Hallgrímskirkju og Kammersveit Hallgrímskirkju.
Stjórnandi: Hörđur Áskelsson

Passía er gefin út á geisladiski af hinu virta finnska útgáfufyrirtćki Ondine í samvinnu viđ Credo. Fá íslensk tónverk hafa vakiđ jafn mikla athygli á seinni árum og hin klukkustundar langa og stórbrotna Passía. Listvinafélag Hallgrímskirkju pantađi verkiđ af Hafliđa Hallgrímssyni í tilefni af 1000 ára afmćli kristnitöku á Íslandi og var ţađ frumflutt í Hallgrímskirkju 18. febrúar 2001. Viđtökur voru svo góđar ađ ákveđiđ var ađ endurflytja verkiđ á föstudaginn langa 2002 og var ţađ hljóđritađ dagana á undan.

Til ađ tryggja ađ fleiri ţjóđir en Íslendingar fengju ađ kynnast ţessu meistaraverki tók Credo ađ sér ađ finna erlent útgáfufyrirtćki fyrir geislaplötuna og náđust samningar viđ áđurnefnt fyrirtćki fyrr í ár. Ondine hefur getiđ sér afar gott orđ á hinum alţjóđlega hljómplötumarkađi, ekki síst fyrir útgáfu á nýrri tónlist og má ţar nefna fjölmarga geisladiska međ tónlist eftir Einojuhani Rautavaara.

Gagnrýnendur og ađrir sem um Passíu hafa fjallađ eru sammála um ađ hér sé á ferđ eitt af merkustu kirkjutónverkum sem Íslendingur hefur samiđ. Texti verksins er byggđur á Passíusálmum séra Hallgríms Péturssonar og úrvalsljóđum eftir skáldin Stein Steinarr, Matthías Johannessen, Hannes Pétursson og Baldur Óskarsson. Í Passíu er glímt viđ spurningar um samband manns og guđs á íhugulan hátt. Trúarlegar vangaveltur skáldanna lifna viđ í skýru og blćbrigđaríku tónmáli Hafliđa Hallgrímssonar. Meitluđ og um leiđ litrík framsetningin á efninu hefur djúp áhrif á hlustendur međ hjálp vandađrar túlkunar Harđar Áskelssonar, en hann fékk bćđi Íslensku tónlistarverđlaunin og Menningarverđlaun DV fyrir flutning sinn á verkinu.

Hljómplötuverslunin 12 Tónar annast dreifingu geisladisksins hér á landi í samvinnu viđ Credo.

Sjá nánar:

Höfundarréttur © 2003-2006 Credo · 2574 flettingar