Í maítölublaði hins virta tónlistartímarits International Record Review birtist enn einn lofsöngurinn um Passíu. Marc Rochester fer afar fögrum orðum um verk Hafliða Hallgrímssonar og talar um „upphafna fegurð" tónlistarinnar. Flytjendur verksins á geisladiskinum fá allir sem einn frábæra dóma og um stjórnandann segir Rochester: „Hörður Áskelsson, sem átti frumkvæði að því að verkið var skrifað fyrir kórinn hans við hina tilkomumiklu Hallgrímskirkju í Reykjavík, er auðheyrilega afar annt um það og mikilfengleiki þess, ástríða og tilfinning fyrir tómi og víðáttu koma kröftuglega fram undir stjórn hans. Hann tímasetur allt fullkomlega, hefur óaðfinnanlega tilfinningu fyrir því hvernig hápunktunum er náð og stýrir framvindunni af mikilli nákvæmni." Lesið dóminn í heild á frummálinu hér!
Það var skemmtilegt að sjá Passíu setjast í tuttugasta sæti Tónlistans í 15. viku ársins (dymbilviku). Tónlistinn er listi yfir söluhæstu geisladiska á Íslandi og þar eru diskar með klassískri eða svokallaðri nútímatónlist afar sjaldséðir gripir. Hafliði Hallgrímsson og flytjendur Passíu skutu þarna popphetjum á borð við Robbie Williams, Rod Stewart og Bo Hall ref fyrir rass og hlýtur að teljast vel af sér vikið.
Passía verður send út í Ríkisútvarpinu (vitaskuld á gömlu, góðu Gufunni) kl. 8.55-10.00 á föstudaginn langa, 9. apríl. Verkið hefur áður hljómað á öldum ljósvakans, enda var frumflutningur verksins þann 18. febrúar 2001 tekinn upp af RÚV og sendur út síðar. Þetta verður þó í fyrsta sinn sem endurskoðuð gerð verksins (með tenórhlutverkinu) hljómar í útvarpi og nú fær allur landslýður tækifæri til að heyra marglofaða hljóðritun Stafræna hljóðupptökufélagsins á meistaraverki Hafliða. Þess má geta í leiðinni að Mótettukór Hallgrímskirkju, sem er auðvitað í aðalhlutverki í Passíu, verður aftur á ferðinni síðar um daginn (kl. 18.20) þegar útvarpað verður hljóðritun frá tónleikum kórsins og Schola cantorum á Myrkum músíkdögum. Á efnisskránni er m.a. snilldarleg tveggja kóra messa Franks Martins.
Það er vart hægt að biðja um betri dóm um einn geisladisk en þann sem gagnrýnandinn og tónskáldið Calum MacDonald gefur Passíu í maítölublaði tónlistartímarits Breska ríkisútvarpsins, BBC Music Magazine, sem er mest selda tímarit um klassíska tónlist í heimi. Eftir að MacDonald hefur ausið lofi yfir tónverk Hafliða Hallgrímssonar og talað um það sem „nýtt trúarlegt meistaraverk", segist hann mæla hjartanlega með diskinum og gefur bæði flytjendum og hljóðritun fimm stjörnur. Lesið og sannfærist!
Það var aldeilis glæsilegur dómur sem féll um Passíu á klassískri rás Bæverska útvarpsins um daginn. Ursula Adamski-Störmer var yfir sig hrifin af tónverki Hafliða Hallgrímssonar og tók ofan hattinn fyrir flytjendum. Hún talaði um heillandi dramatíska og volduga passíu og var ánægð með að tónlist Hafliða talar jafnt til hjarta sem huga. Dóminn má finna á frummálinu á vefsíðu Bæverska útvarpsins og hér er íslensk þýðing á honum.
Fjölmiðlar í Finnlandi hafa gefið Passíu mikinn gaum. Fjallað var um geisladiskinn í finnska útvarpinu og í stærsta dagblaði Finnlands, Helsingin Sanomat, skrifaði Jukka Isopuro: „Verkið skapar sérstaklega í upphafshlutanum óendanleikakennd sem falleg og skýr hljóðritunin og hreinn kirkjuhljómburðurinn magna upp.” Kirkjutónlistarmaðurinn Markku Kilpiö tekur í sama streng í Suomen Kuvalehti, víðlesnu tímariti: „Án þess að sneiða hjá tóntegundabundnum þáttum og þríhljómum skapar hljómsveitin sýnir, stemningar og tónumhverfi sem einsöngvararnir og kórinn fylla með hnitmiðaðri útleggingu á píslarsögu Krists. Verkið er samið til flutnings í Hallgrímskirkju í Reykjavík og hljómrými hennar hefur verið eitt meginhljóðfæri tónskáldsins, eins og glöggt má greina í upptökunni.” Loks má geta þess að í tónlistartímaritinu Rondo vekur Kare Eskola athygli á fögrum sönglínum Passíu og litríkum hljómsveitarbúningnum.
Nýverið var fjallað um Passíu í þættinum CD Review á BBC Radio 3, þriðju rás Breska ríkisútvarpsins, einhverri virtustu klassísku útvarpsrás heims. Það er mikil viðurkenning fólgin í því að fá kynningu í þessum vikulega þætti, enda er þar aðeins fjallað um brot af því flóði geisladiska sem skellur án afláts á markaðnum. Í umræddum þætti var sagt frá tveimur nýjum diskum með tónlist við Passíusálma Hallgríms Péturssonar, auk Passíu var fjallað um Passíusálmadisk Smekkleysu með þeim Magneu Tómasdóttur og Guðmundi Sigurðssyni. Séra Hallgrímur virðist vera „inn" í Bretlandi um þessar mundir, því skammt er síðan BBC sendi út guðsþjónustu frá Hallgrímskirkju þar sem Schola cantorum söng nokkra af Passíusálmunum og sagt var frá skáldinu. Áheyrendur CD Review fengu að heyra tvö nokkurra mínútna brot úr Passíu og þetta var meðal þess sem sagt var um tónlist Hafliða: „Sellókonsert Hafliða Hallgrímssonar sló nýverið í gegn í Skotlandi og þetta stóra kórverk einkennist einnig af vönduðum pensildráttum hljómsveitarritháttarins sem draga upp mynd sem laðar fram ýmsar tilfinningar og hughrif en er um leið óhlutbundin og sjálfstæð."
Nú eru Ondinemenn að hefja alþjóðlega kynningu og dreifingu á Passíudiskinum. Aðdáendur meistaraverks Hafliða Hallgrímssonar bíða spenntir eftir viðbrögðum tónlistaráhugamanna og gagnrýnenda um víða veröld. Ondine hefur tekist mæta vel að vekja athygli á afurðum sínum á undanförnum árum og þær hafa oftar en ekki fengið frábæra dóma og ýmsar viðurkenningar. Nú á dögunum var Ondinediskur með tónlist eftir lettneska tónskáldið Peteris Vasks til að mynda valinn diskur ársins í Cannes Classical Award á Midemtónlistarstefnunni í Cannes. Það er sjálfsagt að geta þess að stjórnandi og einleikari á þeim diski er John Storgårds sem stjórnaði flutningi á nýjum sellókonsert Hafliða Hallgrímssonar á rómuðum tónleikum í Skotlandi í lok janúar. Kíkið á vefsíðu Ondine (www.ondine.net) og lesið um Passíu, Vasksdiskinn og aðra athyglisverða geisladiska!
Við Credomenn erum stoltir af því að geta tilkynnt að hljómplötuverslunin 12 Tónar á Skólavörðustíg 15 mun selja Passíudiskinn og dreifa honum í verslanir á Íslandi. Lárus og Jóhannes hjá 12 Tónum eru þekktir af góðu einu meðal tónlistaráhugamanna. Verslun þeirra er í raun sú eina hér á landi sem býður upp á úrval klassískrar tónlistar og sinnir nýrri tónlist, djassi, blúsi og ýmsum framsæknum greinum tónlistarinnar af natni. 12 Tónar voru stofnaðir og eru reknir af hugsjón og því er fyrirtækið kjörinn samstarfsaðili Credos. Við væntum mikils af samstarfinu.
Hin langþráða stund er runnin upp! Fyrsti ópus Credos er kominn út. Geisladiskurinn með Passíu Hafliða Hallgrímssonar, sem gefinn er út af hinu virta finnska útgáfufyrirtæki Ondine í náinni samvinnu við Credo, er kominn til landsins. Við þremenningarnir höfum unnið að þessu verkefni í tvö ár og erum afar ánægðir með að skútan skuli vera komin í höfn. Hún staldrar þó ekki lengi við, því nú er heimssigling framundan. Geisladiskinum verður dreift í verslanir hér á landi á næstu dögum í samvinnu við 12 Tóna og eftir áramót fer hann í alþjóðlega dreifingu á vegum Ondine.
Eldri fréttir: RSS
Höfundarréttur © 2003-2006 Credo · 11217 flettingar